daria * blogg hégómans
|
föstudagur, júlí 21, 2006 Að leita langt yfir skammt? Í alvöru.. hvað dregur fólk í Nauthólsvík? Sól og sumars á íslenska vísu er hvergi betur notið en við sundlaugarbakka. Sandur .. allstaðar ... á heilögum stöðum og ískaldur sjór. Börnum sem er kalt ... ég skil varla mótífið í fólki sem kýs að sóla sig fjarri sólbekkjum, heitum pottum og barnalaugum. Ég er sundlaugardama, erlendis sem heima, og þrái jafnvel ekkert heitar í dag en að vera á Mallorca (nánar tiltekið á Palma Nova Apartotel) með góða bók í hönd undir sólhlíf við sundlaugarbakka. Súkkulaðiís í annarri og 45 sólarvörn í hinni. Ah. En bölvum ekki Gula ógeðinu sem hefur látið sjá sig á Fróni. Stefni á að eiga mér hyggeligt stefnumót út í garði með Þorgeiri Örlygs um helgina. ------- Ég er að massa þennan lærdóm. Útiloka kannski ekki eitt djamm fyrir 11. ágúst þegar próflestrarfrí byrjar formlega. Bekkjarsystkini mín sem náðu í vor og lesa þetta - vinsamlegast bælið lánsemistilfinningar! Takk. |Dagga| 13:46 miðvikudagur, júlí 19, 2006 Öðruvísi afmæli Á víst einhverskonar þriggja ára anniversary í dag. Það verður að teljast slatti. Samband okkar Hjalta er þ.a.l. komið á fjórða ár. Vá. Auk þess hef ég ákveðið að segja aldrei framar sjitt. |Dagga| 16:41 þriðjudagur, júlí 18, 2006 Hjólin á strætó segja bless bless bless Strætósvalt! Annars gef ég ekki mikið fyrir meintan taprekstur Strætó Bs. Ef almenningssamgangnakerfi á að virka vel (án þess að það kosti hálfan handlegg inn í tryllitækið) þá vita menn vel að a) einkarekstur er ekki svarið og b) sveitarfélög og rekstraraðilar verða að greiða með þjónustunni. Núna kostar höfuðborgarstrætó u.þ.b. 360 milljónir á ári. Mér finnst það réttlætanlegur kostnaður. Það er þó alveg ljóst að laun vagnstjóra verða að hækka, og þá mætti jafnvel sjá einhverja hærri árstölu án þess að ég félli í yfirlið. Berjumst fyrir tilvist strætó! Endurheimtum 10 mínútna hraðleiðir! Koma svo!! (og allir halda kjafti) |Dagga| 16:54 |