daria * blogg hégómans
|
mánudagur, júní 19, 2006 Að vera góður við mömmu sína Aðfararnótt sunnudags fór í að vaka næturlangt með það fyrir augum að skutla mömmu í flugrútu árla morguns þar sem sú gamla ætlar að hjóla frá Þýskalandi til Balkanskaga í 10 daga skemmtireisu. Eitthvað leist mér illa á að kellingin skyldi einungis hafa meðferðis geislaspilara og 4 diska - Best of Cat Stevens, Simon&Garfunkel Live, Dark side of the moon og Best of Sting&The Police. Best-of-mömmutónlist dauðans. Vantaði bara Enyu til að kóróna herlegheitin. Í ljósi þess fannst mér það vera helber skylda mín að lána henni 20GB Ipodinn minn. Ég myndi skella þessum aumingjadiskum í Magnús Ipod sem myndi veita mömmu gömlu stórgott úrval í eftirmiðdaginn á fyrsta hjóladegi þegar hún fengi ógeð á umræddum diskum. Og u.þ.b. hálftíma í brottför hefst ég handa við importun. Eitthvað gengur hún illa þannig að henni er lokið í bílnum við BSÍ þar sem flugrúta bíður. Og þar var það ljóst. IBM tölvan hennar mömmu eyddu ÖLLU út af Magnúsi en aðeins mömmudiskarnir komust inn. AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAARG! En mamma var mjög sátt við þessi 50 lög sem komust inn og gaf lítið fyrir áhyggjur mínar um ógeð á lögunum. Ég var ekki sátt, eins og gefur að skilja. Hafði hugsað mér að móðir mín kæmi heim, stórfróð um The Shins, Benna Hemm Hemm, Belle&S, Dylan, George Brassens og hvaðeina. En nei. Þar sem ég var stödd á BSÍ langaði mig einna mest til að bruna í Akurgerðið, ná í Snæfríði, fylla Magnús aftur af stöffi og hendast í Keflavík þar sem ég næði að klára pakkann áður en final call færi í loftið. Þarna var klukkan 5 að morgni og ég að deyja úr syfju. Eina sem stoppaði mig var bensínníska. Í dag sé ég eftir því að hafa ekki gert það. Mamma hefði allavega getað keypt sér diska til að bæta upp ógeðið í sjálfri ferðinni, en nú hefur hún aðeins Magnús. Og engan séns á að kynnast tónlistarsmekk dóttur sinnar. Muna - redda svona málum sólahring fyrir brottför! |Dagga| 13:02 |